8.1.2009 | 12:57
Og þá gekk annað ár í garð...
Eftir að dóttir mín fæddist fór ég að verða þakklát fyrir hvert ár sem ég fæ með henni og hvern afmælisdag sem ég fæ að halda..því lífið er eins og vitað er..ekki sjálfsagt !
Áður varð ég yfirmáta foj og furðuleg þegar að afmælinu mínu kom eða eftir tvítugsafmælið mitt allavega. Tíminn hefur liðið svo óskaplega hratt og ég er að verða svo óskaplega gömul eitthvað. Komin með nokkrar hrukkur og finnst ég hafa séð nokkur grá hár vera að spretta upp á kollinum... æ nei má ekki hugsa um gráu hárin, hjartslátturinn eykst og verður að kvíða, hehe !!
Mig langaði helst að hoppa yfir afmælisdaginn minn og láta sem hann hefði aldrei gerst þannig ég væri ennþá það gömul sem ég vildi vera. En aldur er afstæður og maður er víst eins gamall og maður vill vera. Ja hérna gullkornin hnjóta af munni mér...
Ég er því bara 25 ára og verð það þangað til ég er orðin 35 ára en þá verð ég nefnilega þrítug alveg þangað til ég verð fertug..skilið ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2008 | 15:50
Held ég sé af erlendu bergi brotin..
Held ég hljóti að vera hálf-ítölsk, 1/4 spænsk og 1/4 mexíkósk..
Elska sterkan mat, elska að elda. Finnst matur frá þessum löndum æðislegur, myndi vilja búa þar og þá sérstaklega á Ítalíu eða Spáni. Elska sólina og hvað fólkið er afslappað.
Ítalskar konur eru líka þekktar fyrir að vera skapheitar og ég er það. Þess vegna gef ég Ítalíu helminginn af mér. Get skipt skapi eins og ragetta en er samt frekar lengi að ná mér niður. Fólkið í kringum mig skilur ekki alveg þessa heift og ekki ég heldur..hvaðan kemur hún ? Þess vegna hlýtur hún að koma frá Ítalíu.
Því miður hef ég ekki útlitið enda eins íslensk í útliti og hægt er að vera held ég. Þó ég hafi á tímabili sem unglingstryppi haldið augunum á mér skásettum í nokkrar mínútur til að fá aðeins austrænna yfirbragð á mig þá fékk ég ekki þá ósk uppfyllta 
Ástæðan fyrir því að mér er mjög oft kalt hlýtur líka að vera út af því að ég er svo blóðheit..getur ekki annað verið !
Það er gott að vera búin að finna þetta út, þá allavega get ég útskýrt sjálfa mig svolítið..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.11.2008 | 18:26
Það er sumar og sól hér..
Allavega í hjartanu mínu...léstu nokkuð platast af fyrirsögninni ?
Kuldinn nauðar hérna úti, það hefur hríðað í allan dag en í mínu hjarta er sól :)
Var að fara í gegnum nokkrar sumarmyndir frá því ég fór í vinnuferð upp í Þórsmörk og Laka.
Þá var engin kreppa og hitinn var um það bil 30 stig..heitasti dagur ársins held ég. Ég var aðeins að fikta í myndunum í photoshop og fékk svona líka yndislegan yl í kroppinn við það, langaði til að leyfa ykkur að njóta líka..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2008 | 09:57
Ó-gleði !
Ég fyllist ógleði yfir mörgu þessa dagana.
Ógleðin nær hámarki þegar efnahagsumræðan virðist ætla að ná öllu sögulegu hámarki og hvergi er hægt að lesa neina fréttamiðla, tala við fólk eða hugsa án þess að hún taki yfirhöndina !
Ekki svo að skilja að ég sé einhver hálfviti sem fylgist ekki með..ég er bara ekki týpan sem nennir að velta mér endalaust upp úr hlutum sem ég get bara ekkert gert í.
Mér verður sérstaklega óglatt þegar ég sé hversu hátt bílalánið mitt er orðið og reikningurinn sem ég fæ í kjölfarið...oj !
Ekki skánar hún þegar ég sé hvað allt er búið að hækka eða er að fara að hækka. Allt ! Og gjaldmiðillinn okkar ónýtur, eða svo gott sem.
En gleðin nær líka að fylla mig...
Mig umvefur svo óútskýranleg gleði þegar ég horfi á dóttir mína og manninn minn, en hvað ég er heppin !!
Gleðin tekur líka öll völd þegar ég hugsa til fjölskyldu minnar, tengda- og blóðfjölskyldu. Ég er ansi lukkuleg með allt þetta yndislega fólk.
Mér hitnar að innan af gleði við það að horfa á tæra snjóinn fyrir utan, kósí íbúðina mína (sem ég á samt ekki..sem betur fer kannski), fötin mín, matinn í ísskápnum.
Ég á allt sem ég þarf og er bara ansi glöð með það, væmin kannski...æji það má alveg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.10.2008 | 09:19
Kreisí in ða brainhouse...
Hver man ekki eftir þessari sígildu setningu..?
Og þetta á svo sannarlega við mig þessa dagana og laumulega þá fíla ég það alveg í botn !!
Ég elska að hafa nóg að gera, er þessi týpa sem vinn best undir álagi. Sem því miður fær mig samt alltaf til að skila öllum verkefnum algerlega á síðustu stundu og valda mér smá stresskasti
en ætli það sé ekki hluti af þessu bara.
Ég þarf að skila tveimur verkefnum á sunnudag og á morgun...nei er að fatta, Í DAG !!..þarf ég að skila mynd í Ljósmyndakast Krumma (atburður á vegum Menningarnátta Ísafjarðarbæjar..rétt skrifað ?) og er ég búin að vera brainstormandi síðustu 2 daga bæði í vöku og svefni. Já mig dreymdi hvernig ég ætlaði að taka myndina, hvernig mig langaði það og allar pælingar inn á milli svo var ég vaknandi á hálftímafresti hugsandi það sama og mig dreymdi....KREISÍ !! Ég er samt ekki alveg nógu ánægð með myndina, ekki ljósmyndafyrirsætuna samt hún var æði heldur birtuna.
Og ég verð svo pirruð þegar þetta er ekki að ganga hjá mér eins og ég vill að það gangi.
Ég vill kunna þetta NÚNA og mig langar svo að verða góður ljósmyndari NÚNA !!
Alveg eins og með verkefnin sem ég skila í skólanum ég vill að þau séu pottþétt og vill fá toppeinkunn fyrir þau..bara 100% !! Verð pirruð út í sjálfa mig ef ég næ því ekki..
maður ætti kannski aðeins að slaka á kröfunum..nei hugsa ég þá strax..ég á alveg að geta þetta.
Ég veit ekki alveg hvaðan þessi metnaður kom, á unglingsárunum var mér svo slétt sama og alveg framyfir tvítug (s.s bara fyrir stuttu síðan
). Mér fannst bara fínt að fá 5 eða 6 á prófi, hei ég náði þó !! Las fyrir próf daginn áður en ég fór í þau og bara var svo alveg sama, hafði nóg annað að hugsa um eins og á hvaða ball ég ætlaði þessa helgina..grunnhyggnin að drepa mig.
En ekki lengur ég hef sem betur fer þroskast en þarf bara að vinna í þessari fullkomnunaráráttu..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 09:58
Ég var búin að gleyma....
..hvað það er yndislegt að hjúfra sig undir teppi við kertaljós
..hvað það er ljúft að lesa góða bók undir sæng, með gluggann opinn.
..hversu geggjað það er að vakna kl 6:00 og fara í ræktina, svitna og hamast auk þess að þurfa ekki að stressa sig á því hvenær hægt væri annars að komast eftir vinnu. Þú ert bara búin að þessu !!
..hversu gott það er að svitna almennilega, finna fyrir árangri !
..í nokkur augnablik hversu þakklát ég er.
..Sana Sól !!
..í amstri hversdagsins hvað knús getur gefið ótrúlega mikið.
Langar í tilefni þessara síðustu punkta að minna á KNÚSVIKUNA..Klikkið HÉR til að vita meira og látið orðið ganga !!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.10.2008 | 12:13
1. í vetri..
Nei ég nenni ekki einu sinni að ræða þessa kreppu sem er löngu komin og múgæsinguna í kjölfarið...bara svo það sé á hreinu
.
Mér finnst fyrsti snjórinn alltaf svo kósí, þá er líka myrkrið farið að læðast yfir. Svo maður getur kveikt á kertum og haft kósí undir teppi eða við tölvuna sem ég virðist eyða mestum mínum frítíma. Hvort sem það er skóli eða vinna. Ég og tölvan mín erum eitt og ég bara veit ekki hvað ég gæti gert án hennar.
Skellti mér til Rvk í skólann um helgina og það var sko vetraríki á leiðinni, það fannst mér ekki gaman. Það er eins og ég gleymi hvernig á að keyra í hálku og snjó eftir sumarið. En þetta kemur örugglega. Tók haust og vetrarmynd á leiðinni set það inn á síðuna mína bráðlega.
Annars er ég bara þakklát í þessu "ástandi í dag" og ætla að njóta lífsins..vona að þið gerið það sama
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.9.2008 | 20:31
FATAMARKAÐUR !!
Hvar er betra að auglýsa það sem maður er að selja heldur en á blogginu sínu.
Ertu stelpa og vantar töff og vel með farin föt, kíktu þá á okkur systur.
Haustkveðjur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2008 | 12:24
Súkkulaði - Punkturinn yfir i-ið !
Ég elska súkkulaði, ég er háð súkkulaði, ég á erfitt með að lifa daginn af án þess að fá súkkulaði !
Eftir matinn, hvort sem það er hádegismatur eða kvöldmatur VERÐ ég, já bara verð að fá, þótt það sé ekki nema einn bita af súkkulaði, svona til að fullkomna þetta. Mig vantar alltaf einhverja fyllingu eftir mat ef ég fæ ekki súkkulaði. Má líka vera súkkulaðikex eins og ég var að fá mér núna því ég á ekki "alvöru" súkkulaði.
Morgunmaturinn sleppur við súkkulaðiþörfina sem betur fer..já eða oftast! Hvað er þetta með þessa gífurlegu þörf í súkkulaði ??
Og uppáhalds maturinn minn og auðvitað eftirmatur er volg, blaut súkkulaðikaka með vanilluís og jarðarberjum...nammmmm !! Ég er alltaf farin að skoða eftirréttarmatseðilinn áður en ég skoða aðalréttina og slefa yfir því að það sé súkkulaðikaka á matseðlinum, læt það þó alls ekki oft eftir mér.
Lífið væri allavega fátækara án súkkulaðis..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.9.2008 | 14:30
Klukk!
Þar sem ég hef ekkert til að blogga um og ekki búin að gera myndirnar sem ég tók tilbúnar fyrir vefinn þá ætla ég að taka áskoruninni frá henni Fanný um að svara þessum eftirfarandi lista:
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Frystihúsinu Dalvík
- Dvalarheimilinu Dalbæ - Dalvík
- Verslunin Zara, Smáralind.
- Sjúkraliði á FSÍ
Fjórar kvikmyndir sem ég held upp á:
- The Notebook
- E.T
- Sódóma Reykjavík
- The Secret
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
(þeir eru svooo margir, en t.d. þessir)
- Hjarðarslóðinni Dalvík
- Mýrarvegi, Akureyri.
- Via del Bosco, Sikiley - Italia
- Mánagötu, Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Friends
- Fóstbræður
- Sex and the city
- How I met your mother
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Spánn
- Danmörk
- Belgía
- Biskupstungur
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
Þessa dagana er það líka Fatamarkaðurinn ! (sem ég og systa erum með..síðan er í vinnslu)
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
- Volg súkkulaðika með vanilluís og jarðarberjum..nammmm !!
- Kjúklingasúpuna mína (uppskrift frá Elísu)
- Allskonar kjúlla
- Kódilettur í raspi
Fjórar bækur sem ég les oft.
- Road atlas
- Rauðhetta
- Mjallhvít
- Snúður og snælda:)
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Barcelona !!
- heima að knúsa dóttir mína
- Köben
Klukka....ALLA... !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



ansiva
lindape
bjarnardottir
biggibix
rocksock
ylfamist
majabet
helgamargret
samlokugrill
101isafjordur
jonastryggvi
juljul
vestfirdir
kokkurinn

